Sérsmíðum

Úr áli og stáli

Skipaviðgerðir

Áralöng reynsla og yfirgripsmikil þekking okkar leysa viðgerðarmálin á bestan hátt

Vélsmiðja

Við leggjum áherlsu á gæðin og vinnubrögðin til að tryggja að verkin okkar standist kröfur

Handrið

Fyrir íslenskar aðstæður þarf að gera vel til að standast tímans tönn

Um Stálorku

Fyrirtækið Stálorka var stofnað 1985 af tveimur ungum mönnum frá Ísafirði, þeim Benedikt Jónssyni og Páli Harðarsyni sem voru á þessum árum að vinna í Stálvík í Garðabæ. Fyrstu árin voru þeir bara tveir að vinna hjá Stálorku. Seinna kaupir Benedikt Pál út úr fyrirtækinu og svo bætast í hópinn nokkrir starfsmenn. Árið 1996 voru 4 starfsmenn hjá fyrirtækinu, sem var í leiguhúsnæði á Skútahrauni 11. Stuttu seinna var tekin ákvörðun um að byggja yfir starfsemina og fengin ákjósanleg lóð að Hvaleyrarbraut 37 í Hafnarfirði. Teiknað var hús sem passaði undir starfsemi félagsins og smíðaði Stálorka grindina og reisti húsið. Var það tilbúið í febrúar 1997.

Á næstu árum fjölgaði starfsmönnum og hafa margir unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár. Sá sem hefur lengstan starfsaldur fyrir utan stofnandann er búinn að vera í teyminu síðan 1993 og því gríðarlega þekking og reynsla sem hefur byggst upp í gegnum tíðina. Stálorka hefur alla tíð lagt mesta áherslu á vinnu sem tengist sjávarútvegi, t.d. viðhald og breytingum á bátum og skipum og nú í seinni tíð allskonar búnað sem tengist plastbátaútgerð. Fyrirtækið tekur einnig að sér fjölbreytt verkefni og hikar ekki við að takast á við nýjar og krefjandi áskoranir við hönnun og smíði á hlutum úr stáli og áli.